Veitingahús í sögufrægu húsi við ána

Tryggvaskáli er veitingahús í sögufrægu húsi við brúarsporðinn á Selfossi. Við eldum úr íslensku hráefni og tökum á móti gestum í hlýlegum stofum þar sem sagan býr í hverjum vegg.

Blár panelveggur með skrautdiskum og glugga í Tryggvaskála
Réttur með brokkolíni og sveppum á viðarborði

Íslenskt hráefni í gömlu húsi við ána

Tryggvaskáli býður upp á úrval rétta sem unnir eru úr íslensku hráefni. Hér er hægt að setjast niður í rólegheitum, hvort sem tilefnið er kvöldverður, helgarbrunch eða drykkur við ána að loknum degi.

Kvöldverður

Eldhúsið opnar kl. 17:00

Forréttir, aðalréttir og eftirréttir þar sem íslenskt hráefni fær að njóta sín.

Matseðill

Brunch

Allar helgar 11:30–15:00

Brunch við ána allar helgar, frá 11:30.

Brunchseðill

Drykkir

Happy Hour 16:00–18:00

Kokteilar, vín og bjór. Happy Hour alla opnunardaga, og frá 11:30 um helgar.

Drykkjaseðill

Gömul ljósmynd frá Tryggvaskála og Selfossi

Tryggvaskáli reis árið 1890, ári áður en fyrsta brúin yfir Ölfusá var vígð. Hér hafa ferðalangar fengið mat og gistingu frá 1901, konungar hafa setið hér til borðs og áin hefur oftar en einu sinni flætt upp að dyrum.

Lesa söguna

Gefðu kvöldstund í Tryggvaskála

Þú kaupir gjafabréfið á netinu og færð það sent í tölvupósti um leið.