Skilmálar
Almennir skilmálar
Tryggvaskáli áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, til dæmis vegna rangra verðupplýsinga, og til að hætta að bjóða upp á vörur án fyrirvara. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis. Upplýsingar á vefnum eru birtar með fyrirvara um innsláttarvillur, verðbreytingar og birgðastöðu.
Söluaðili
Brúarhúsið ehf., kt. 450521-1080
Austurvegi 1, 800 Selfoss
Sími: 482 1390
Netfang: [email protected]
Afhending
Pantanir eru afgreiddar um leið og þær berast. Gjafabréf eru send í tölvupósti samstundis.
Verð
Öll verð á vefnum eru með 11% virðisaukaskatti.
Greiðslur
Hægt er að greiða með korti á netinu eða á staðnum þegar pöntun er sótt. Gjafabréf er einungis hægt að greiða með korti á netinu. Kortagreiðslur fara í gegnum örugga greiðslugátt og kortaupplýsingar eru aldrei afhentar þriðja aðila.
Gjafabréf
Gjafabréf gilda í fjögur ár frá útgáfudegi. Sé aðeins hluti upphæðarinnar nýttur heldur eftirstandandi inneign gildi sínu. Gjafabréf má nota oftar en einu sinni innan gildistímans, þar til inneignin er uppurin.
Skilafrestur og endurgreiðsla
Einungis er hægt að skila pöntun ef röng vara var afhent. Að öðru leyti er vísað til laga um húsgöngu- og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og laga um neytendakaup nr. 48/2003.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar eru ekki undir neinum kringumstæðum afhentar eða seldar þriðja aðila.
Lög og varnarþing
Um skilmála þessa gilda íslensk lög. Rísi mál vegna þeirra skal það rekið fyrir Héraðsdómi Suðurlands.
Skilmálarnir gilda frá 18. nóvember 2021.
